24.1.2010 | 07:07
SAFNGRIPIR.
Eitt mesta þrætueplaþorrablót landsins fór fram í gærkvöld. Nelgdir í hefðir og gamla siði blótuðu Bolvíkingar þorra, nokk sama um álit umheimsins. Trog, þjóðbúningar, hjúskaparheit og lögbýli þrömmuðu inn í salinn og einu Brusselviðmiðin í gangi brennivínið. Sigur íslendinga á dönum var tilkynntur með viðhöfn og bolvízkur kvenpeningur sá um skemmtiatriðin, laus við kynjakvóta. Kommar og íhald stigu dans og söfnuðu þreki fyrir komandi pústur í vor. Í öllu þessu varð mér ljóst að svona bæjarfélag getur ekki sameinast neinu. Leyfum geirfuglunum að vera geirfuglar og bönnum þeim það ekki því slíkir eru safngripir.
LÁ
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.