22.1.2011 | 01:21
BLESS, SÁNKTI JÓ.
Plan heilbrigðisráðherra er að umbylta starfsemi St. Jósefsspítala Hafnfirðinga um næstu mánaðamót. Áætlað er að flytja nær alla þjónustu undir þak Landspítalans, skurðdeild, rannsóknardeild og göngudeild. Enn og aftur er góðri einingu slátrað í nafni miðstýringar. St. Jósefsspítali hefur reynst hafnfirðingum vel og stærð stofnunarinnar í góðu flúkti við stærð bæjarfélagsins. Eflaust sparast eitthvað við samnýtingu deilda og starfskrafta en auðveldlega væri hægt að ná þessum aurum inn með því að hætta við byggingu nýs hátæknisjúkrahúss á landspítalalóðinni. Miðað við samdrátt Landspítalans og fjöldauppsagnir er löngu ljóst að nýrrar byggingar er ekki þörf hvað þá brýnt og jafnvel skaðræði. Yfirbyggingu Landsspítala eins og annarra ríkisbákna þarf hinsvegar að skera niður og ætti það að vera forgangsatriði en ekki ráðast á skilvirkar einingar sem eru að þjónusta fólk en ekki fundafíkn yfirmanna og tengdra skrautfugla. Við innlimun St. Jósefsspítala tapar 20 þúsund manna bæjarfélag bæði störfum og reisn sem óvíst er að náist nokkurn tíma til baka. Gerræðisleg ákvörðun eins og þessi undirstrikar enn og aftur nauðsyn þess að bæjarfélög fái meiri sjálfsstjórn yfir sínum málum og þá kemur að öðrum ásteytingarsteini, tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Hana þarf svo sannarlega að endurskoða.
LÁ
Athugasemdir
Þörf orð Lýður, takk! Það svíður sárast að heilbrigðisþjónusta virðist hætt að snúast um fólk heldur er þetta bara spurning um völd. Það hefur komið berlega í ljós í "svokölluðu" sameiningarferli St.Jósefsspítala og Landspítala undanfarnar vikur.
Stefana Björk Gylfadóttir (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 10:04
"Yfirbyggingu Landsspítala eins og annarra ríkisbákna þarf hinsvegar að skera niður og ætti það að vera forgangsatriði en ekki ráðast á skilvirkar einingar sem eru að þjónusta fólk en ekki fundafíkn yfirmanna og tengdra skrautfugla" Ótrúlega sönn setning hjá þér. Málið er að fólk hagar sér ekki eftir miðstýringunni. Eru þeir vissir um að fólk sem hefur valið sér að starfa á St.Jó hafi einhvern áhuga á að starfa á LSH? Mér finnst trúlegra að aðilar sem hafa valið sér þann starfsvettvang sé fólk sem sæki í að starfa í litlu, frjálsara og þægilegra umhverfi.
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 22.1.2011 kl. 11:07
Sælar, stelpur. Held tryggustu útleiðina út úr þessu miðstýringarfári sé aukin sjálfstjórn sveitarfélga og sanngjarnari skipting tekjustofna milli ríkisins og þeirra. Þá gæti Hafnarfjörður sjálfur forgangsraðað sínum innabæjarmálum.
LÁ
lydurarnason (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 13:43
Er það eitthvað lögmál að miðstýring þurfi alltaf að vera versta leiðin ?
Miðað við stærð okkar samfélags þá hefði maður haldið að ekki ætti að vera flókið að haga málum með einfaldari hætti en þegar kerfið er farið að vera til fyrir sjálft sig og er að auki notað til pólitískra bittlinga þá er ekki von að vel fari.
Hjalti Tómasson, 22.1.2011 kl. 13:55
Heilbrigðisyfirvöld frömdu að mínu mati hryðjuverk á íslenska heilbrigðiskerfinu þegar Landskotsspítali var lagður niður í þáverandi mynd. Heimska, fordómar, úrræðaleysi, skortur á yfirsýn og ófagleg vinnubrögð hafa einkennt skipulag og framkvæmdir ráðuneytis heilbrigðismála á undanförnum árum. Þetta er að hluta okkur læknunum að kenna þar sem við höfum verið of uppteknir við að grilla kjöt á kvöldin og grilla sjúklinga á daginn. Ég tek því ofan fyrir þeim kollegum mínum, sem leggja höfuð á höggstokk stjórnmálanna svo framarlega sem sú hin sama fallexi er ekki búin að sníða af þeim framheilann.
Það sér það hver skynsamur einstaklingur að það á að vera metnaður okkar að láta þessar litlu heilbrigðisstofnanir sem, sem hafa í áratugi skilað hlutverki sínu með sóma, í friði.
Júlíus Valsson, 22.1.2011 kl. 15:23
Líti ég yfir völlinn sé ég miðstýringu sjaldan auka velsæld. Hvalur er svifaseinn og lengi að snúa sér meðan smáfiskarnir eru snöggir. Litlar einingar eins og St. Jósefsspítali hafa þjónað vel í gegnum tíðina og voru íslendingar færri er til var stofnað. Þegar Landakot hvarf af sjónarsviðinu misstu landsmenn frábæran spítala, held flestir sem þekkja samanburðinn séu sammála um það. Íslendingar eru ekki of fámennir fyrir litlu einingarnar heldur þær stóru, það er mín skoðun.
LÁ
lydurarnason (IP-tala skráð) 22.1.2011 kl. 19:57
Trúlega hefur þú rétt fyrir þér með miðstýringuna.
Það sem hinsvegar er að trufla mig er samt sú staðreynd að í þessu örsamfélagi okkar þá virðist alltaf eins og við þurfum að búa til kerfi sem sniðin eru að milljónaþjóðum. Allir vinnuferlar eru langir og flóknir, svo maður segi ekki ósveigjanlegir. Þurfi ríkisstofnun eða ráðuneyti að skila áliti eða niðurstöðu innan þriggja mánaða þá eru teknir þrír mánuðir í verkið ( eða jafnvel meira eins og dæmin sanna ) þó vinnan sjálf taki ekki nema nokkra daga.
Auðvitað er ég sammála þér með litlu einingarnar, til þess þarf ekki nema meðalgreind sem ég vona ég hafi en þannig er nú bara ekki með stjórnmálamennina okkar. Þeir setja samasem merki milli þungrar stjórnsýslu og ábyrgrar stjórnsýslu. Það þarf alveg sérstaka hæfileika til að gera einfalda vinnu flókna en það kunna æfiráðnu embættismennirnir okkar og eftir ekki mjög langan tíma þá verða jafnvel best gerðu menn samdauna þessum vinnubrögðum. Um þetta eru mýmörg dæmi. Gamlir sveitastjórnarmenn sem áður vildu allt vald í heimabyggð verða skyndilega mjög uppteknir að ábyrgri stjórnsýslu.
Hjalti Tómasson, 22.1.2011 kl. 22:47
Góð samlíking hjá þér Lýður þetta með hvalina. Smáhvelin eru sneggri og vinna oft frábærlega saman í litlum hópum sbr. háhyrningana. Líklega er þetta náttúrulögmál, sem hefur því miður yfirsést af misvitrum ráðamönnum.
Júlíus Valsson, 22.1.2011 kl. 23:14
Það eru einmitt langir og flóknir vinnuferlar sem einkenna yfirmannaða stjórnsýslu. Við höfum lagt traust okkar á háskólasamfélagið en samantekið hafa álit þess og útreikningar ruglað þjóðfélagið fremur en einfaldað. Menntun er góð en án náttúrugreindar jafnvel skaðleg. Höfnin á Bakka er nærtækt dæmi.
LÁ
lydurarnason (IP-tala skráð) 23.1.2011 kl. 03:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.