24.3.2011 | 00:51
ÞINGRASKANIR.
Jafnréttislagabrot forsætisráðherra rís nú hátt. Grafalvarlegt segir einn og annar að forsætisráðherra eigi að íhuga stöðu sína. Sjálf segir Jóhanna ferlið hafa verið vandað og þessi úrskurður koma á óvart. Einhver þversögn hlýtur að vera í kerfinu ef kærandi er samkvæmt hæfnismati númer fimm í röð en eigi þó heimtingu á stöðunni í krafti kyns. Til hvers er þá þetta mat? Hvimleiðast er þó þegar hrunfólkið ryðst fram á völlinn með umvandanir. Í öllum skólum landsins eru skólasálfræðingar, sem taka á röskunum grunnskólabarna. þyrfti ekki þingsálfræðing til að kveða niður þingraskanir alþingismanna? Jafnvel tvo, einn fyrir hvorn væng og af sitthvoru kyni?
LÁ
Athugasemdir
Annaðhvort þingsálfræðinga eða þingsiðfræðinga. Sennilega eru siðfræðingarnir mikilvægari, allavega að mínu mati... Það var sorglegt að sjá Þorgerði Katríni bæði á þinginu og í Kastljósi kvöldsins, hún þyrfti að fara í siðfræðikennslu. En náttúrulega fyrst að segja af sér þingmennsku...
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.3.2011 kl. 01:25
Gott hjá þér Lýður !!!
Þorður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 04:42
Þetta lið í stjórnarandstöðunni sem tilheyrir hrunaflokkunum var ekki mikið að kippa sér upp við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um stórfellt mannréttindabrot á sjómönnum í áratugi.
En þegar ein kerling að áliti jafnréttisnefndar 101 Reykjavík fær ekki að míga standandi þá verður allt vitlaust
.............
Níels A. Ársælsson., 24.3.2011 kl. 08:54
enn er nú gamla hrunfólkið Jóhanna og Össur að stjórna hér, og nýtt hefur svo bæst við
Ó (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 09:39
Það verður að lesa niðurstöðu kærunefndarinnar til að vita um hvað er að ræða. Í henni stendur meðal annars: ,,Af framangreindu er ljóst að sá sem skipaður var hafði hvorki menntun eða starfsreynslu umfram kæranda né sérþekkingu eða aðra þá hæfileika sem áttu að ráða úrslitum um skipun hans í embættið. Forsætisráðuneytið hefur ekki sýnt fram á að málefnaleg sjónarmið hafi ráðið því er sá sem embættið hlaut var skipaður en ekki kærandi. Þegar menntun kæranda, starfsreynsla og hæfni í þeim sérstöku hæfnisþáttum sem sérstaklega var óskað eftir er borin saman við sambærilega kosti þess sem embættið hlaut verður vart önnur ályktun dregin en að kærandi hafi í það minnsta verið jafn hæf og sá sem embættið hlaut.'' Þar segir einnig: ,,Fyrir liggur að allir fjórir skrifstofustjórar forsætisráðuneytisins eru karlar og af 54 skrifstofustjórum Stjórnarráðsins, að utanríkisráðuneytinu undanskildu, voru á þeim tíma sem hér um ræðir og eftir því sem næst verður komist, 38 karlar og 16 konur.''
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 24.3.2011 kl. 10:21
Afsakið leturstærðina.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 24.3.2011 kl. 10:22
Rétt að gamla hrunfólkið hangir enn á stjórnartaumunum og ei minnkar bölið við það. Finnst þó framganga Þorgerðar Katrínar betur óframgengin. En, Benedikt, var búinn að lesa álit kærunefndar og hef ekkert við það að athuga heldur hins, hvers vegna það er svona ólíkt mati forsætisráðuneytisins? Fullt af fólki í vinnu, niðurstaðan margátta og klabbið borgað úr sjóðum hins opinbera. Samt eru þarna hæfisnefndir, jafnrettislög og fagaðilar. Skil orðið lítið í þessari stjórnsýslu, ekki bara eitt heldur allt.
LÁ
lydurarnason (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 10:30
Sama hér!
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 24.3.2011 kl. 10:44
Ég held að það þurfi ekkert minna en særingamann til að særa út alla djöflana sem virðast sitja á þingi og gera allt vitlaust.
Er ekki Gunnar í fríi?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2011 kl. 11:57
Hvor Gunnarinn?
lydurarnason (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.