20.10.2008 | 03:09
KREPPAN EÐA GRÍMUR.
Svefnröskun. Kreppan eða Grímur. Frétti af honum í blönduðu bokkía, ömurlegt. Svipað og Silfrið með jafnri kynjaskiptingu. Svo er ég á öðrum degi föstu. Ákvað að prófa hungurverkfall til að vera ekki alveg grænn þegar skrambans kreppan skellur á. Krakkarnir verða svo með á morgun og hinn. Hundurinn sleppur enda óþarft að þrengja að honum, við búum á fornleifum. Víkin er nú við frostmark í öllum skilningi. Og það er eins og óáranin fyrir sunnan, að mestu heimabakað. 100 milljónir í félagsheimili er umdeilanlegt en í varnargarð ekki. Það er ekki bara æskustöð Pálma Gestssonar sem hverfur undir bing. Verst er þó þetta blandaða bokkía á honum Grím, það er eitthvað svo óendanlega lítið Grjóthrun í því.
LÁ
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.