FLOKKARNIR 5.

Mótmælaöldunni linnir ekki.  Kannski þvert á spár og örugglega þvert á vonir.  Sumra.  Veruleikinn síast smátt og smátt inn í þjóðina, eitt kurl í dag og annað á morgun.  En hverjir eru duglegastir að mæta og hverjir latastir?Flokkur 1.  Aðgerðarsinnar.  Hópur fólks sem mótmælir valdstjórninni á pólitískum forsendum og beitir til þess ýmsum ráðum, t.d. borgaralegri óhlýðni.  Þessi aðferð er tortryggð en að sama skapi oft árangursrík.  Mannkynssagan færir okkur sanninn um það.  Þessi hópur á sér í senn fyrirlitningu og aðdáun.  Flokkur 2.  Lambúshetturnar.  Öflugur hópur en ótrúverðugur vegna felubúningsins.  Rökin eru útskúfun annars en málstaður án andlits er ónýtur.  Útskúfun er nesti mótmælandans og óumflúið.  Hulin andlit minna líka á klanið og stendur mörgum stuggur af slíku.  Eðlilega.Flokkur 3.  Almenningur.  Fjölmennasti mótmælendahópurinn og mætir til að láta óánægju sína í ljós.  Stjórnarandstæðingar fylla þennan hóp, örgustu kommaafturhaldstittir sem og liðhlaupar stjórnarflokkanna.  Þetta fólk hugsar ráðamönnum þegjandi þörfina og bíður síns tíma eða gleymir. Flokkur 4.  Hinn þögli meirihluti.  Megn þjóðarinnar og getur skipt sköpum á hvorn vænginn hann hallast.  Þessi hópur er seinþreyttur til vandræða en mun læðast úr hýðum eftir því sem hallærið eykst.  Flokkur 5.  Samsekir.  Ráðamenn, flokksgæðingar og fylgismenn.  Þetta fólk metur mótmælin í fjarlægð og bíður þess að linni.  Gerist það ekki munu margir yfirgefa skápa sína og ganga til liðs við óvininn.  Þegar eru innviðir farnir að bresta.Þessi ríkisstjórnin hefur, eins og sú fyrri, vanvirt lýðveldishugsjónina, troðið henni í svaðið og upphafið klíkusamfélag fáeinna.  Tróna nú á toppnum en ekki sem ígildi lífs heldur dauða.  Íslenzkum almenningi líður eins og hræjum undir ásjónu þessara gamma.  Mótmæli munu því halda áfram og fari illfyglin ekki með góðu má eins búast við illu.        

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Er ég þá bara þriðjafloks maður?

Offari, 21.1.2009 kl. 00:44

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er bara einn fjórðúngur, en stefni á að bæta mig !

Steingrímur Helgason, 21.1.2009 kl. 01:21

3 Smámynd: Offari

Það er spurning hvort maður ætti ekki að fara að skipta om flokk á þessum óvissutímum.

Offari, 21.1.2009 kl. 01:35

4 identicon

gersamlega sammala þessari flokkun

doddi koddi (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband