22.1.2009 | 02:22
"ÞAÐ ER SKYLDA MÍN"
Tveir lögreglumenn grýttir og illa slasaðir. Táragasi beitt og skálmöld staðreynd. Skyldur lögreglumannsins eru þær sömu við þessa valdstjórn, fyrri valdstjórnir og komandi. Ég held að fáum hugnist að breyta því. Læknir gæti staðið frammi fyrir þeirri skyldu að blása lífi í Ólaf Ólafsson, Halldór Ásgrímsson eða Sigurð Einarsson. Ömurlegt hlutskipti myndu sumir segja en til þess gæti þó komið. Eflaust bera margir löggæzlumenn sama hug til ráðamanna og fólkið sem stendur þeim andspænis lemjandi potta og pönnur. Mótmælum því friðsamlega og látum lögregluna í friði. Hvort sem er: Kerti þessarar ríkisstjórnar er að brenna upp, hún mun engan verma hér eftir og limlestingar í hennar nafni vindhögg.
LÁ
Athugasemdir
doddiafi
Ást og umburðarlyndi er sterkasta aflið. Amen
Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 05:27
sæll lýður læknir
ég tek undir þetta hjá þér. en margt fólk gleymir í hita leiksins að mótmæli fylgir ábyrgð eins og öllu athæfi. kv d
doddý, 22.1.2009 kl. 09:16
Við þörfnumst hvers annars. Til að halda uppi samfélagi þurfum við alla flóruna. Ég vona að manngæskan eyðileggist ekki í þessu ástandi. Að samfélagið læri að bera virðingu fyrir hvort öðru og ég held að þingmenn séu að læra þetta núna en eitthvað virðast aðrir hafa gleymt því.
Offari, 22.1.2009 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.