RAFMAGNSLEYSI.

Loksins ekkert að frétta.   Hefðbundið rafmagnsleysi í blæstrinum.  Gerist alltaf fari vindhraði yfir 7 vindstig.  Nútíminn hverfur og kerti og spil eina úrræði dægrastyttingar.  Enn ein augljós forréttindi landsbyggðarinnar.     Önnur eru náttúrulega fjarlægðin frá höfuðborginni og hávaðanum þar.  Samt er ég í heildina ánægður með þessa svokölluðu "borgaralegu óhlýðni".   Hún hefur skilað ráðamönnum því að ganga ekki að öllu vísu og útiloka aldrei að verða  fyrir eggi.    "Sveitaleg óhlýðni" er að verzla ekki í heimabyggð.   Minni að lokum á viðhorfssnúning varðandi fjárhagslega ávinninga.   Í stað belgings vegna góðrar innkomu og útsjónarsemi tapa nú allir hver um annan þveran og forðast sem eld að skera sig úr.  Allir vilja vera undir hrammi kreppunnar, að minnsta kosti á framhliðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frettum linnir ekki þó rafmagninu slái út.  Sjávarútvegsfyrirtækin skulda  bönkunum. 425 miljarða.  Geir segir af ser.  Kosningar verða 9. maí.  þiá er komið að því að koma sér í skotgrafirnar.

Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband