"Í UPPHAFI SKAL ENDINN SKOÐA"

Boðorðin tíu, skilyrði samfylkingar til stjórnarsamstarfs, liggja nú fyrir.  Strax rekur maður auga í fyrsta skilyrðið sem er tryggð við AGS og vegferð hans.   Samkvæmt yfirlýsingum formanns vinstri grænna er það hnjótur.  Engu breytir þó hagfræðingur ríkisstjórnar kveði á um lítið svigrúm til breytinga, orð eru orð.    Boðorð númer tvö fer þó enn verr í maga, líka fyrir framsóknarflokkinn.   Þar stendur:

2. Gerðar verði breytingar á stjórnarskrá hvað varðar fullveldi og auðlindir þjóðar. Jafnframt verði lögð fram tillaga um stjórnlagaþing, sem verði kosið til samhliða þingkosningum.

Fyrstu málsgreininni er klárlega ætlað að virkja boðorð tíu sem er: 

10. Kosningar til Alþingis verði haldnar 30. maí 2009. Samhliða þingkosningum fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort sækja eigi um aðild að Evrópusambandinu.”

Samþykki þjóðin aðildarviðræður að evrópusambandinu verður eitt helsta verkefni næstu ríkisstjórnar að halda utan um það ferli.   Tilslökunum varðandi fullveldi og auðlindir var hafnað á nýafstöðnu framsóknarþingi og afstaða vinstri grænna til evrópumála er kunn.   Að þessu ættu báðir flokkarnir að hyggja áðuren til stjórnarmyndunar kemur því teljast verður fábjánaháttur að samþykkja boðorð tvö til þess eins að leggjast með samfylkingu í 100 daga.   Þá hlýtur utanþingsstjórn að vera betri kostur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er gott hjá þér, að stútera boðorðorðin tíu.  Ég læt þig alveg um þessa deild.  Gullfiskaminnið nemur ekki allar þessar skammstafarnir.  Ég hefði haldið að ASG væri eldavélaframleiðandi, eða eitthvað svoleiðis.  Lýður minn!  Ég hef sagt það áður eg segi það enn.  Við þörfnumzt þín.  Trausti segir, að þú sért ömulegur í markaðsetningu.  Láttu þér það í léttu rúmi liggja.  Ég skal taka það að mér.  Annars er væntanleg ríkisstjórn, nú þegar kominn í tóma steypu  Virkilega athiglisvert viðlal í Kastljósþættinum í kvöld.  Nú eru svartklæddu strákarnir, sem allt vissu búnir með uppsagnarfrestinn.  Og allt verður vitlaust 

Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 21:42

2 identicon

Ég barasta veit það ekki Lýður minn, er okkur ekki bara betur borgið í ES?  Hérna á klaka er hver mannvitsbrekkan við stjórn og ekkert að viti kemur úr þessu öllu saman.  Við höfum greinilega klikkað á öllu sem heitir eftirlit og við höfum klikkað á öllu sem heitir að fá fagmenn til að stjórna hlutunum, getum varla kosið okkur forseta sem við erum sátt um.   Er ekki bara betra að fá kerfið í Brussel til að stjórna þessu gengndarlausa bulli sem við erum í.  Er traustið svo mikið hér á klaka að við getum?  Er eitthvað verra að Brussel stjórni sjávarútvegnum hér?  Við náttúrulega teljum okkur svo rosalega klár að stjórna honum að við höfum farið úr 400þús t. í 160þús t. frá því að núverandi kerfi var tekið upp, fyrirgefðu úr 380þús t. en þar áður, fyrir kerfið er Bretar, Þjóðv. Belgar ofl. veiddu hér, allt uppí gróflega talið 700þús t.

Pétur B. (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 22:38

3 identicon

Doddi, minn.  Ánægður að þú takir péerrrið að þér,  þú mátt byrja á að hringja í Obama. 

Pétur, varðandi ESB, þá hefur þú nokkuð til þíns máls en ég trúi því að hér sé hægt að ríkja og stjórna, fæða og klæða, veiða og slátra fyrir 300.000 þúsund hræður.  Óstjórn sl. ára er ærin en ég tel hana einstaka og ekki dæmigerða í sögu lýðveldisins.

Kveðja,

LÁ 

lydur arnason (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 01:51

4 identicon

Æ ég veit að ekki, elsku vinur.  Eginn stjórnandi breta, hefur komið frá borg, sem telur okkur íslendinga til jafns og ekki eru kanar að fá stjórnanda frá "Skítt á þig" í Nebraska, 300.000 manna þorpi.  Við aftur á móti höfum sagt þessum þjóðum með forsetann í för að við séum mikið skynsamari og með meiri víðsýni.  Við skyljum hvað þetta gengur útá og fáir hafa mótmælt. 

Ekki var ég bjartsýnni á að heyra í tilvonandi formanni sjallanna á ÍNN í kvöld, þar talaði maður með tilvonandi 25% atkvæða og ekki var mikið að skylja á honum að breytinga væri að vænta.  

Ég, elsku karlinn, sé ekki að þetta sé að breytast. 

Þarf ekki að koma með lausnir á þessum bloggsíðum, ekki bara væl.  Ég skal taka undir með þér þegar þú ferð að finna lausnir og ég held að Siggi og Doddi komi með góða punkta þegar þarf og þá getum við stoltir sagt að lausnin komi frá 250 manna þorpi

PS ég er ekki með bloggsíðu. 

Pétur B. (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 02:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband