FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN AÐ NÝJU SAMFÉLAGI.

Sé rétt að okkar bíði 2000 milljarðar til borgunar er eins gott að hörfa og marka okkur víglínu nógu aftarlega.   Með því vinnum við okkur dýrmætan tíma.   Forystumenn ýmissa fagfélaga og launþegasamtaka fara mikinn og  tala um brostnar forsendur kjarasamninga.  Svo sannarlega rétt en komandi launabarátta verður varnarbarátta og ekki bara um laun heldur líka vinnu.  Tryggingasjóður atvinnuleysisbóta stendur illa og gæti verið uppurinn um áramót.  Verðbólgan er tæp 20% og atvinnuleysið stefnir í sama far.  Hagræðingin í sjávarútvegi er komin til Pógóeyja en skuldir heimilanna eru hér.   Hver einasti íslendingur þarf að gíra sig niður og það sem gildir í dag gildir ekki á morgun.  Launalækkanir, skattahækkanir, niðurskurður velferðar, þetta er það sem við blasir .  Og því fyrr sem við einhendum okkur í verkið því fyrr komumst við á réttan kjöl.  En fyrst þarf að gera eitt.  Setja afturvirk lög á gömlu firringuna.  Að geta t.d. ekki losnað við ónýta seðlabankastjóra nema borga fyrir hundruði milljóna er ótækt.  Að forsvarsmenn þjóðarinnar sem ekki stóðu sína pligt fái mánaða biðlaun samhliða þingstörfum er ótækt.  Að æðsti maður fjármálaeftirlits með allt á hælunum sé leystur út með milljónum er ótækt.   Eftirlaunalögin alræmdu eru ótæk.   Ótrúlega margt er ótækt.  Því eigum við að setja afturvirk lög á þessar endaleysur allar, afnema öll sérréttindi  og samrýma starfs- og starfslokakjör allra opinberra starfsmanna.  Þjóðin er að vakna eftir vondan draum og fyrsta skóflustungan að nýju samfélagi þarf að vera djúp.   Það þýðir enga hálfvelgju og verði menn fúlir þá verður bara svo að vera.

LÁ   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í gærkvöldi sá ég einn,sem aldeilis er búinn að gíra sig niður.  Þar sem ég sit dottandi fyrir framan sjónvarpið birtist ekki þar ( nema hvað ) glottandi útað eyrum, sjálf vonarstjarnan, formaður framsóknarflokksins. Þetta var í þættinum hans Loga:  Hann var þar í félagsskap með jónu B

Það er að minnsta kosti einn, í fremstu víglínu, sem ekki er á því, að þurfa að gíra sig niður. Þar sem ég sit dottandi fyrir framan sjónvarpið birtist sjálfur formaður framsóknarflokksins glottandi útað eyrum.  Hann nú aldeilis ekki bugaður af vandamálum, drengurinn sá. Í félagsskap með Jónu Ben.  Þar sem umræðuefnið var, stólpípuframkvæmdir í Póllandi...........Var maður vitni að stórkostlegu plotti?Eða hvað? 

Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 07:11

2 identicon

Hvað er eiginlega að þessari tölvu?  Ég ítti óvart á enter, og allt sem ég var búinn að rirta, hvarf einsog dögg fyrir sólu.  Ég á víst ekki annað skilið, sem fyrrverandi framsóknarmaður.............Opinn í báða enda.

órður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 07:46

3 identicon

Doddi, Koddi.  Grunar einhvernveginn að það sem kemur í athugasemdirnar sé millipælingarnar en sjálf spekin sitji eftir.  Getur það verið?

lydur arnason (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 13:18

4 identicon

Sælir Doddi og lýður.

Við erum víst allir þrír fyrrverandi framsóknarmenn. Það segir sig sjálft að ekki kemur til greina að borga þessu liði milljónir í biðlaun eftir það sem á undan er gengið.

hingað og ekki lengra. Hvenær ætlar doddi að biðjast afsökunar á afsökunarbeiðninni?Þegar menn draga svona í land verða menn að færa rök fyrir sínu máli. 

kv sig haf

Sigurður j hafberg (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 14:37

5 identicon

Það er alltaf sama sagan með þetta gáfumanna lið.  Ert þú aðdándi stjórnmálafræðinganna, eða hvað?  Ekki vantar nú háfleig ummæli á þeim bæ.  Ég stilli mig inná Ragnar Reykás meðan ruglugangurinn gengur Yfir. Annað er heilsuspillandi........Ég er í fræðslu hjá Vottunum og læt mig dreyma um Paradís á Jörð.  Hana nú, og hafðu það á hreinu.  Þú líka Siggi.

Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 15:56

6 identicon

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til setu á næsta þingi.  Ég lofa að leggja fram þingmannafrumvörp með skóflu og greiða atkvæði eftir minni sannfæringu.  Svo að trúverðuleiki minn, um að ég gangi til kosninga óbundinn þingflokkum, verði ekki dreginn í efa, þá sækist ég eftir efsta sæti í prófkjöri allra stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram í norðvesturkjördæmi til þings. 

Þar sem miklir vafatímar (biðtímar) eru framundann þá þigg ég biðlaun, þar til ljóst er hvort ég kemst á þing eða ekki.  Mun bjóða mig aftur fram að fjórum árum liðnum ef með þarf.

Þar sem að framboð þetta er rekið af litlum efnum þá mun ég nota bloggsíðu Lýðs til að kynna stefnumál mín.

Með fyrirfram þökk fyrir veittan stuning.

Pétur B.

Pétur B. (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 16:58

7 identicon

Held að Koddinn sé að fara á limmimgunum.  Velkominn með þín stefnumál, Pétur.

lydur arnason (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 05:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband