Í SKATTAPARADÍS.

Orðið hátekjuskattur ýtir mörgum hátekjumanninum út af brúninni.  Bara orðið ýfir upp kambinn og menn heita á bjargvættinn, Davíð.  Samt var tregða í hans tíð að afleggja  hátekjuskattinn endanlega.   Vegna þjóðfélagsástandsins kemur þessi skrambi nú sterkur inn í umræðuna og klýfur fólk í fylkingar.   Þó greyið skili ekki ýkja miklu er hann táknrænn.   Mörgum mun líða betur.   Annað mætti laga og það er að samræma tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt.  Gjáin á milli þeirra er allt of víð eins og oft vill verða þegar farið er að slá í.   Á sokkabandsárum fjármagnstekjuskattsins höfðu fáir viðurværi sitt af slíku andstætt því sem nú er.   Því þarf að endurskoða þennan skatt og hækka.   Einnig þarf að taka hann inn í útsvar.   Fólk hlýtur að sjá að í svona árferði eru skattahækkanir óumflýjanlegar og eðlilegt að byrðunum sé ýtt meira á þá tekjuhærri.  Samhliða ætti að afnema öll fríðindi einstakra hópa.   Sjálfstæðismenn sem andæfa skattahækkunum geta lítið sagt, öll þessi sporðaköst eru vegna þeirra óstjórnar, þeirra gegnsýrða klíkusamfélags sem kann ekki einu sinni að skammast sín.   Skattaparadísin Ísland er fyrst og fremst hugmyndafræði sjálfstæðisflokksins þó aðrir sjái um framkvæmdina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hef ofnæmi fyrir skattaumræðu..........Fæ útbrot og grænar bólur.

Þórður Sævar Þórðarson (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 19:33

2 identicon

'Astæða?...   Jú....Árið 1959 fékk ég eitthundrað og fimmþúsund krónur   í tekjuskatt.  Hátt uppí þónokkuð það.   Ekki framreiknað.....engin skattaparadís það.

Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 20:37

3 identicon

Skattur er lagður á tekjur, ekki satt? Hvað eru tekjur? Í mínum huga eru tekjur,virðisauki þ.a.s. eitthvað sem eykur verðgildi sitt. Fjármagnstekjuskattur ætti þess vegna að leggjast á verðmætisaukningu fjármagnsins sem er í ávöxstun. Ef þú átt 1.000.000, inn á bankabók á 19% ávöxtun,færð þú 190.000kr. í vexti á ári og borgar 19.000 í fjármagnstekjuskatt. Verðbólgan á Íslandi er 18% þannig að milljónin þurfti að ávaxtast um 180.000 til að halda verðgildi sínu. Þannig að í þessu dæmi ert þú að fá 9.000kr. meira í fjármagnstekjuskatt en þú fékkst í raunávöxtun. Þannig að í lok árs er milljónin orðin 0,9% lægri að verðgildi en í upphafi árs!!Ég vil vara við  órökstuddri upphrópunarumræðu í uppbyggingu nýs íslands. Hins vegar tek ég undir hugmyndir um hátekjuskatt, þó ég sé væntanlega einn af þeim sem hann þyrfti að borga eftir að ég hóf að vinna fullt starf að nýju. Einhver þarf að borga innistæðulausa góðærið sem flokkur nýju fata keisarans stærði sig hvað mest af.

Falur (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband