HVER ER AFSTAÐA SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA?

Mikið er talað um hjól atvinnulífsins og gangsetningu.  Nýlega jók sjávarútvegsráðherrann fyrrverandi þorskkvótann um 30.000 þúsund tonn og útdeildi til núverandi handhafa.   Með pálmann í höndunum gat ráðherrann fest þessar aflaheimildir sjávarbyggðunum og unnt bæjarfélögunum að leigja þær hæstbjóðanda gegn því að landað væri í heimahöfn og fiskurinn verkaður í heimabyggð.  Þetta myndi strax færa líf í byggðirnar og jafnframt bæjarfélögunum nýjan tekjustofn.   Á þessum nýja grunni gæti atvinnulífið farið í gang og handhafar fyrri heimilda boðið í þessar nýju eða haldið áfram að veiða sitt.   En, nei.  Ráðherrann hélt tryggð við kerfið sem kollverptist.  Kerfið sem búið er að hagræða sínu til Pógóeyja, kerfið sem átti að vernda fiskimiðin og þjóðarhag.   Þykist ég viss um að einhverjir snúi sér við í gröfinni yfir þessum ósköpum en ráðherrann ræður engu lengur og sýta það trúlega fáir.  Nýr ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon,  fer mikinn í hvalveiðinni en gott væri að vita hug hans til sjávarútvegsstefnunnar í heild.   Á löngum stjórnmálaferli er hann enn hulinn, þó veit ég að þegar atkvæði voru greidd 1990 um kvótaframsalið var umræddur jámaður þess.

LÁ   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alltaf sama sagan með þennan mann......Alveg típískur Umhverfisráðherra.

Þórður Sævar Jónsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 01:52

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Einar K. Guðfinnsson er viðrini og föðurlandsóvinur !

Held Steingrímur þori engu af gríðarlegum ótta við glæpafélag LÍÚ.

Alla ráðherratíð Einars K, stjórnaði hann daglega sínum málaflokk með skipulögðu aðgerðarleysi, þungt haldinn ákvarðanatökufælni.

Níels A. Ársælsson., 9.2.2009 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband