GAMALT VÍN Á NÝJUM BELGJUM.

Þrátt fyrir þjóðarskellinn í haust, þrátt fyrir almenn mótmæli og kröftug, þrátt fyrir augljósa ágalla stjórnskipunar og stjórnarskrár, þrátt fyrir ömurlega umgengni ráðherra og vökuleysi, þrátt fyrir vanmátt alþingismanna og hratt versnandi lífskör virðist framgangur nýrra framboða hægur.  Í samantekt hefur allur atgangurinn fremur styrkt fjórflokkakerfið en veikt.  Framundan eru kosningar og lýkur á meirihlutastjórn framsóknar og sjálfstæðisflokks þó nokkrar.  Formannsslagur samfylkingar ýtir svo sannarlega undir þennan möguleika, hugsanlegt brotthvarf frjálslyndra og síðast en ekki sízt fjölmiðlar sem hygla stærstu molunum.   Hætt er við að nýtt Ísland verður gamalt vín á nýjum belgjum. 

LÁ       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður Sævar Jónsson

Vangaveltur þínar um væntanlegar kosningar og niðurstöður þeirra eru athiglisverðar,   'eg er sammála þér eins og svo oft áður.

Þórður Sævar Jónsson, 15.2.2009 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband