1.5.2009 | 03:37
VARÚÐ: GRJÓTHRUN!
Grjóthrun í Hólshreppi átti sér stað í dag, nánar tiltelkið í Óshlíð. Áttum við skötuhjúin erindi á Ísafjörð og vorum skammt í hlíðinni norðanmegin er betri helmingurinn benti á hnullungavöðu streymandi úr háhamrinum. Samstundis jók hún hraðann og náði að forða samstuði. Mjóaði þó munu. Á milli vegskála skömmu síðar lá tindur á stærð við bæjarstjórann fyrrverandi. Var sá tiginn þó á hlið væri. En brátt mun fjallið opnast og slysagildran heyra sögunni til. Múkkinn mun fá frið og mannlíf allt hverfa úr hlíðinni nema kannski einn hlaupagikkur.
LÁ
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.