3.6.2009 | 03:20
DROPINN HOLAR STEININN.
Verðtrygging er hagstjórnartæki sem ver lánadrottna og fjármagnseigendur fyrir gengisbreytingum, þ.e. að lán og innistæður étist ekki upp í verðólgu nái hún sér á flug. Í kreppunni hafa margir ámálgað afnám verðtryggingar svo heimili og fyrirtæki sligist ekki af skuldum. Fyrsta birtingarmynd þessa má sjá í endurgreiðslu sjálfstæðisflokks til handa FL-grúppunni sálugu sem heyrir víst undir einhvern ríkisbankann nú. Sjálfstæðisflokkurinn mun endurgreiða þetta margumtalaða, milljóna kosningaframlag á 7 árum, vaxtalaust. Hér hlýtur að sannast hið fornkveðna að dropinn holi steininn.
LÁ
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.